Kleifar Tjaldsvæði/Camping |
|
02.08.2012 16:33Á Döfinni um verslunarmannahelgina 2012Á Döfinni um verslunarmannahelgina 2012 á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni,
Laugardagurinn 4. ágúst Kl.13:00-18:00 Sveitamarkaður í Tunguseli í Skaftártungu. Handverk, kaffisala, vöfflur og fl..
Kl.14.00 Hlutavelta í matsal Kirkjubæjarskóla á Kirkjubæjarklaustri. Miðaverði stillt í hóf og engin núll. Allur ágóði rennur til tækjakaupa fyrir Heilsugæslustöðina á Kirkjubæjarklaustri. Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps og Kvenfélagið Hvöt
Sunnudagurinn 5. ágúst Kl. 14:00 Guðsþjónusta í Bænhúsinu á Núpsstað. Séra Ingólfur Hartviksson predikar og þjónar fyrir altari. Kristján Gissurarson frá Eiðum leikur á orgel. Félagar úr kórum prestakallsins leiða söng.
Kl. 21:00 Kvöldganga um Kirkjubæjarklaustur með ferðaþjónustufyrirtækinu Slóðum. Ekkert þátttökugjald. Gangan hefst við Kaffi Munka, við Systrafoss, og endar við íþróttavöllinn á Kleifum um kl. 10:30
Kl.22:30 Kvöldskemmtun við íþróttavöllinn á Kleifum. Brekkusöngur, brenna og flugeldasýning. Hljómsveitin "Dalton" leiðir brekkusönginn. Björgunarsveitin Kyndill sér um flugeldasýningu.
Kl.24:00 Dansleikur með hljómsveitinni "Dalton" í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Húsið opnar kl. 23.00. Aldurstakmark 16 ára. Miðaverð kr. 3000.
Styrktaraðilar að dagskrá verslunarmannahelgar 2012 á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni: Farfuglaheimilið Hvoll, Ferðamálafélag Skaftárhrepps, Hótel Geirland, Hótel Klaustur, Islandia Hótel Núpar, Kirkjubæjarstofa, Skaftárhreppur, Slóðir, Vatnajökulsþjóðgarður.
Velkomin í Skaftárstofu - Kirkjubæjarklaustri
Upplýsingamiðstöð ferðamanna, sýning um náttúru og sögu Skaftárhrepps og Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Kvikmyndin Eldmessa, frítt inn. Friður og frumkraftar Kirkjubæjarstofa Skaftáreldar ehf Skaftárhreppur Vatnajökulsþjóðgarður www.klaustur.is Written by Gunna Today's page views: 71 Today's unique visitors: 42 Yesterday's page views: 181 Yesterday's unique visitors: 53 Total page views: 648165 Total unique visitors: 129187 Updated numbers: 1.3.2021 19:20:19 |
Archive Tjaldsvæði Name: KleifarCell phone: 8617546Email: kleifar68@simnet.isAddress: Geirlandsvegur (Mörk)Location: KirkjubæjarklausturPhone: 4874675About: Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5km. frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðrisdögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatnssalerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð. Stutt er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.Links
|
© 2021 123.is | Signup for 123.is page | Control panel