Kleifar Tjaldsvæði/Camping |
|
02.08.2012 16:33Á Döfinni um verslunarmannahelgina 2012Á Döfinni um verslunarmannahelgina 2012 á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni,
Laugardagurinn 4. ágúst Kl.13:00-18:00 Sveitamarkaður í Tunguseli í Skaftártungu. Handverk, kaffisala, vöfflur og fl..
Kl.14.00 Hlutavelta í matsal Kirkjubæjarskóla á Kirkjubæjarklaustri. Miðaverði stillt í hóf og engin núll. Allur ágóði rennur til tækjakaupa fyrir Heilsugæslustöðina á Kirkjubæjarklaustri. Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps og Kvenfélagið Hvöt
Sunnudagurinn 5. ágúst Kl. 14:00 Guðsþjónusta í Bænhúsinu á Núpsstað. Séra Ingólfur Hartviksson predikar og þjónar fyrir altari. Kristján Gissurarson frá Eiðum leikur á orgel. Félagar úr kórum prestakallsins leiða söng.
Kl. 21:00 Kvöldganga um Kirkjubæjarklaustur með ferðaþjónustufyrirtækinu Slóðum. Ekkert þátttökugjald. Gangan hefst við Kaffi Munka, við Systrafoss, og endar við íþróttavöllinn á Kleifum um kl. 10:30
Kl.22:30 Kvöldskemmtun við íþróttavöllinn á Kleifum. Brekkusöngur, brenna og flugeldasýning. Hljómsveitin "Dalton" leiðir brekkusönginn. Björgunarsveitin Kyndill sér um flugeldasýningu.
Kl.24:00 Dansleikur með hljómsveitinni "Dalton" í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Húsið opnar kl. 23.00. Aldurstakmark 16 ára. Miðaverð kr. 3000.
Styrktaraðilar að dagskrá verslunarmannahelgar 2012 á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni: Farfuglaheimilið Hvoll, Ferðamálafélag Skaftárhrepps, Hótel Geirland, Hótel Klaustur, Islandia Hótel Núpar, Kirkjubæjarstofa, Skaftárhreppur, Slóðir, Vatnajökulsþjóðgarður.
Velkomin í Skaftárstofu - Kirkjubæjarklaustri
Upplýsingamiðstöð ferðamanna, sýning um náttúru og sögu Skaftárhrepps og Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Kvikmyndin Eldmessa, frítt inn. Friður og frumkraftar Kirkjubæjarstofa Skaftáreldar ehf Skaftárhreppur Vatnajökulsþjóðgarður www.klaustur.is Skrifað af Gunna Flettingar í dag: 66 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 181 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 648160 Samtals gestir: 129187 Tölur uppfærðar: 1.3.2021 18:44:34 |
Eldra efni Tjaldsvæði Nafn: KleifarFarsími: 8617546Tölvupóstfang: kleifar68@simnet.isHeimilisfang: Geirlandsvegur (Mörk)Staðsetning: KirkjubæjarklausturHeimasími: 4874675Um: Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5km. frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðrisdögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatnssalerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð. Stutt er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.Tenglar
|
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is